Visit Akranes
 Flýtileiðir
11. september kl 12 á Safnasvæðinu í Görðum

Markaðsdagur á Safnasvæðinu

20. september Fjölbrautaskóli Vesturlands

Námskeið hefst: Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum

Verið velkomin

á visitakranes.is

 

Ertu á leið til Akraness?

 

Ætlarðu á íþróttamót, eða langar þig að spila golf? Þekkirðu einhvern á Skaganum og langar að kíkja í heimsókn? Þessi upplýsingavefur er ætlaður öllum þeim sem langar að gera eitthvað skemmtilegt og spennandi á Akranesi, bæði heimamönnum, brottfluttum og líka þeim sem hafa aldrei komið "upp á Skaga" og vita því e.t.v. ekki hvers þeir fara á mis.

 

Hér má finna margvíslegan fróðleik um Akranes, útivist og íþróttir, sögu og menningu, fjallið, sandinn og fólkið! Hér má einnig fá upplýsingar um allt það sem er á döfinni á Akranesi og tengingar inn á aðra vefi m.a. vef Safnasvæðisins og Markaðsráðs Akraness, þar sem finna má upplýsingar um ýmsa þjónustu á Akranesi.

 

Verið velkomin á Skagann!

Næsta mynd Fyrri mynd

Kútter Sigurfari á Safnasvæðinu að Görðum

Kútter Sigurfari, þessi eina og sanna þjóðarskúta Íslendinga, er eitt helsta tákn Akraness þar sem hann ber við Akrafjall á Safnasvæðinu að Görðum.